
Verkefni: Gluggaskipti
Staðsetning: Ásbraut 15-17, 200 Kópavogur
Áætlaður verktími: 15. ágúst - 30. nóvember
Verkkaupi: Húsfélagið, Ásbraut 15-17
Eitt stærsta viðhaldsverkefni sem félagið hefur sinnt til þessa – gluggaskipti á fjölbýlishúsinu við Ásbraut 15–17. Um er að ræða umfangsmikla endurnýjun á gluggum á suður-, vestur- og austurhliðum hússins, þar sem eldri gluggar eru teknir út og nýir settir í staðinn. Lögð er sérstök áhersla á gæði, einangrun og fagleg vinnubrögð í öllum verkþáttum.
Verkið er unnið í nánu samstarfi við húsfélagið og eftirlitsaðila, með það að markmiði að tryggja vandaðan frágang og lágmarks truflun fyrir íbúa á meðan framkvæmdum stendur. Verkefnið er skipulagt með skýrum verkferlum og áherslu á öryggi – m.a. eru settar upp girðingar og merkingar til að tryggja öryggi íbúa og vegfarenda á meðan á verkinu stendur.